Lágt lyfjaverð
Garðs Apótek er gamalgróið apótek sem býður upp á lágt lyfjaverð og góða þjónustu.
Auk lyfja og hjúkrunarvara er gott úrval af fæðubótarefnum, vítamínum og heilsuvörum í apótekinu.
Garðs Apótek er í alfaraleið á miðju höfuðborgarsvæðinu. Auðvelt er að komast til og frá apótekinu og næg bílastæði við innganginn.
Apótekið er bjart og rúmgott og gott aðgengi fyrir viðskiptavini.
Verið velkomin í Garðs Apótek, opið er virka daga frá kl. 9 til kl. 18, lokað um helgar.
Um okkurGóð þjónusta
Afgreiðslan er hröð og þjónustan er persónuleg í Garðs Apóteki.
Hægt er að láta taka til lyf á lyfseðla með því að nota Appótek Garðs Apóteks, senda tölvupóst eða hringja í apótekið.
Boðið er upp á heimsendingar á höfuðborgarsvæðinu og póstsendingar um land allt.
Lyfjaskömmtun er fyrir þá sem þess óska.
Sérhæfð þjónustu er varðandi stómavörur, þvagleggi, næringardrykki og sykursýkisvörur.
Viðskiptavinir geta sest niður og gluggað í tímarit eða fengið sér kaffbolla eða vatnsglas í rólegheitum.
Þjónusta